Pura Vida...!
30.01.2008 23:52:58 / stebbigu

Tekið vel á því...!

    Já oki...... sælt veri fólkið.  Ég er nú ekki búinn að blogga í langan tíma þannig að mér fannst vera kominn tími til þess núna.

    Það sem er að frétta af mér er bara allt það fínasta. Kellinn búinn að vera í skólanum og gera hitt og þetta. Ég ætti reyndar að vera að vinna í heimildar ritgerð en maður er eitthvað að setja það á bið þar sem ég er ekki enn búinn að ákveða hvað ég ætla að skrifa um en það mun koma á endanum þótt tillögur væru fínar.

   Annars þá fór ég á mína fyrstu æfingu eftir áramót í gær þar sem ég tók hressilega á því og veit ég það því ég var búinn að hlaupa svo mikið að ég var farinn að fá blóðbragð í munnin en hvað gerir maður ekki fyrir heilsuna. En eftir að æfingin var búinn teygði ég á því kraftalega þannig að ég get örugglega gert svipaða hluti og þessar kínversku liðarlausu kellingar gera. En eftir það hljóp ég nokkra hringi til þess að setja endapunktinn á þetta.

   Ég ætla nú að fara að setja nýa skoðanakönnun inn þannig að það er um að gera að kjósa um besta Ópalinn en ég ætla að setja úrslitin bráðum hingað inn.

   En allavegana þá er tími kominn á lullutíma þannig að ég ætla mér að fara að fara að tannbusta og sofa en annað blogg hlítur nú að koma stuttu seinna.

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Reykjavík, Íslandi. Takk fyrir mig.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 14:38:23 / stebbigu

það bara stittist í jólin

ég ætlaði bara að láta ykkur vita að það er ekki langt í jólin.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 21:15:33 / stebbigu

Helgin búin og kellinn búinn að keupa PS3

   jæja þá er þessi helgi búin og ný vika byrjuð. Á föstudaginn var ég búinn í skólanum einhvertíman einhertíman en eftir skólann þá fór ég í BT ég fékk mér eitt stikki playstation 3 svona til að gera eitthvað og auðvitað keipti ég líka FIFA 08 með, annað var ekki hægt. svo var mar bara að spila í tölvinni slatta tíma eftir það en ég er búin að komast af því að mar verður bara að að hafa flatskjásjónvarp með þessari tölvu því þegar ég tengdi tölvuna heima hjá pabba þá voru gæðin helmingi betri.

   Annars þá bara tók ég þessari helgi rólega og fór ekkert út á lífið. Var aðalega bara í PS3 á laugardaginn og svona og á sunnudaginn þá var bara chillað.  

   Annars þá er ég búin að plana það að koma heim til Ólafsfjarðar næstu helgi þannig að það er eins gott fyrir fólk að vera vel viðbúið og hafa nóg af kökum og kræsingum handa mér. Ég er búinn að heyra það frá ákveðnum aðila að það muni verða eitthvað svoleiðis í gangi þegar ég kem. En ég hef ekki meira að segja í bili.

Um að gera að taka þátt í könnunini;)

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Reykjavík, Íslandi


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 17:09:03 / stebbigu

Þegar Menn verða menn....!

Helló evrí bodí.

Þetta er bara trailerinn. Hitt kemur seinna.

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Reykjavík, Íslandi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 23:14:09 / stebbigu

Það verður allt að ganga sinn vanagang er það ekki?

   Jæja hvað á maður nú að segja. Ég er allavegana búinn að "búa" hérna í borginni í um hva  3. vikur eða eitthvað svoleiðis og mar er nú farinn að venjast þessu eins og með allt þá þarf mar að aðlagast og það er nú bara þannig með mig að ég er eins og kameldýr að ég er fljótur að aðlagast umhverfinu og aðstæðum. Þessi skóli sem ég er í hann er nú bara ágætur eins og það nú bara er. Ég héllt nú að hann væri stærri en ég komst að öðru. Það eru nú bara um 700 nemendur í honum. Aðeins færri en eru í VMA.

   En allavegana þá ætlaði ég nú að búa til albúm héna og setja inn myndir af Spánar ferðinni en það var að ganga eitthvað erfiðlega því ég bara gat ekki sett myndir inn. Þetta er alltaf svona, það er alltaf eitthvað vesen með svona hluti eða allavegana hjá mér, ég veit ekki hvernig það er hjá öðrum annars. En ég ætla að halda áfram að reyna þetta hellv... og þetta á allveg örugglega eftir að ganga á endanum en málið er bara að vera þolinmóður sem ég er bæði og ekki. Skiljið. En ég segi þetta gott í bili.

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Reykjavík, Breyðholltinu Íslandi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 22:31:49 / stebbigu

Læra Reykjavík City

   Ég verð nú að byrja á því að segja að ég er ekki búinn að fara á þessa síðu í mjög langan tíma en nú þegar að ég er nú lox kominn inn á síðuna þá ákvað ég nú að setja inn eitt stikki færslu.

   En það sem er að frétta af mér er að ég er nú fluttur í Höfuðborgina / borg dauðand / borg óttans / myrkraborgina / Reykjavík. Eg er nú hætur að vera á sjónum og hef ákveðið að fara í skóla að læra eins og maður gerir nú í skóla eða a.m.k. á að gera í skóla. Ég var nú að koma úr utanlandsferð frá Spáni eða svona eiginlega "menningaferð" eins og ég vill kalla það og það var skal ég segja ykkur allger snilld en við förum ekkert nánar út í þá sálma núna. En allavega þá er ég í FG eða Fjölbrautaskóla Garðabæjar og er að læra viðskipta og hagfræði. Ég fór nú ekki í skólann fyrstu svona eina og hálfa vikuna þannig að ég þarf að vinna mig smá upp í skólavinnu en maður bara kílir á það og nær þessari vinnu upp á no time.

   Annars þá bara hef ég það gott hérna í borginni og kann bara vel við mig hérna en ég er í kjallara í Breyðholltinu sem að er eins og eitt herbergi en maður hefur nú samt klósettaðstöðu og sturtuaðstöðu þannig að mar er ekkert að fara að gera þarfir sínar í einvherju horni eða baðasig í læknum einhverstaðar þar sem að maður kemst.

   En ég segi þetta gott í bili ég er að fara að horfa á "The 300" sem að er mest töff mynd allra tíma.

Kveðja frá Reykjavík Íslandi, Stebbi Gunn (Gönnerinn)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 21:41:47 / stebbigu

Já ég er að fara á sjó

  Já ég er ekki búinn að blogga lengi af ærinni ástæður en það er vegna þessa að ég er nú eftir allt alltaf á sjó og ekki get ég bloggað þaðan. En ég kom í land á laugardagsmorninum í síðustu viku og svo er ég að fara aftur á morgun.  Svo kem ég aftur í land en örugglega ekki fyrr en eftir um það bil mánuð. Þannig er það blogg bloggað. Veriði sæl ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 16:11:30 / stebbigu

Take A Chill Pill

   Góðan daginn ágætu lesendur og veriði velkomin á hemasíðuna mína. Jæja nóg af formlegheitunum.

   Nú er það að frétt af mér að ég er bara hérna heima og sit í sófanum með tölvuna í kjöltu mér og hef ákveðið að taka því rólega þar til að ég fer á sjóinn en það verður að ég held í byrjun maí. En ég held að ég sé búinn að gera frekar lítið af því undanfarið að taka því rólega eða svona helst tvær síðustu vikur.

   Nú eins og einhverjir vita þá verður hið helvíti magnaða og árlega bandímót þann 28 apríl næstkomandi og ég ætla að gera hvað sem ég mögulega get til að fá að keppa í því en þá verður það örugglega með mánanum eða eitthvað þannig. En allavegana þá er þetta viðvörun fyrir alla þá sem að ætla sér að keppa á mótinu því ég mun koma sterkur inn og ganga hart í það að vinna þetta mót.

P.S. Ég er búinn að æfa á fullu og er kominn í gott form eins og þið sjáið.4a.gif

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Ólafsfyrði, Íslandi.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 23:11:59 / stebbigu

"Enginn Fitnar Af Fögrum Orðum"

   Jú blesuð og sæl allir saman. Langt síðan að við höfum hist en samt ekki nógu langt. Mg langaði bara að koma inn með eina færslu þar sem að ég er að jafna mig á sýkingu í hálsi og reyndar fleiru sem að ekki verður talið hérna upp. En ég hef það bara ágætt núna ef einvher er að spá í því en um daginn þá var það nú þannig að ég gat ekki étið neitt nema það væri í vökva formi í gær og daginn undan því en allt er að batna núna.

   Annað í fréttu er nú bara að helgin sem var að líða var eftir minnilegt fyrir marga hluti en það var gert mart skemmtilegt og ógleimanlegt þá. Punktur..

    Fyrir þá sem að ekki vita þá er söngvakeppni framhaldsskólanna næsta laugardag og að þessu sinni þá er það haldið á Akureyri en ekki "í Akureyri" eins og einvher sagði um helgina en ég mæli með því fyrir alla að mæta þangað því ég held að ég viti að ég ætla að gera það.

   Allavegana þá er komið nóg í bili að mér finnst. Ég veit að ykkur finnst það ekki en það ég sem ræð hérna.

Þetta Stebbi Gunn sem talar frá Ólafsfirði, Iceland


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 17:59:33 / stebbigu

DiggiDiggi Djamm

   Ég var að koma að sunnan núna í gær og er þannig bara að chilla hérna á Óló núna. En fyrir sunnan vgerði ég eitthvað heldur lítið annað en á laugardaginn fór ég á nett djamm með allskonar fólki sem ég var að kynnast og svona. Svo hitti ég Aron og Brynjar frændir af bestu gerð og við fórum öll á Sólon þar sem að var bara svona hellvíti gaman þótt að mig kvíði fyrir að fá kreditkorta reiknginn frá því hveldi því mig minnir að ég hafi verið að splæsa út og suður en nóg um það.(til hvers að eiga peninga ef maður eyðir þeim ekki) eins og "ekki" nýski maðurinn sagði.

   En já ég fór eitthvað mað Nallaranum Jóni Hauk eitthvað á rúntinn í bænum áðan og frá honum heyrði ég að það væri balla með Palla á Sigló sem að mér leist svona hellvíti vel á og er núna búinn að vera að hringja um kvippinn og kvappinn af fari inn á Sigló og það lítur svona allt í lagi út í augnablikinu þó ekkert æðislega en ég fer bjartsýnn maður.

    En allvegana þá bara að skemmta sér skikkasamlega meðan að maður getur og haga sér vel á djamminu annars þá verður dagurinn á eftir hörmulegur... hehe.

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Ólafsfirði, Iceland. Pís Át.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 19:05:08 / stebbigu

The Ultima Thule

.   Það vita það kanski ekki margir en Ísland var fyrist fundið af Grikkjum í kringum 330 – 320 fyrir krist af manni að nafni Pytheas að haldið er og kallaði hann landið Ultima Thule eins og margir vita vegna bjórsins Thule. En það er ekki alvíst afhverju hann kallaði landið þetta þótt margir segji að það hafi eitthvað við það að gera að orðið getur merkt “endi hins þekkta alheims” á grísku og var þá átt við þetta land sem þessi gríski landkönnuður sá. Ég er nú búinn að finna það út hvernig ísland fékk þetta nafn og er það ekkert líkt þessu. Hérna kemuer það.   Þannig var nú það að þessi landkönnuður var þarna að sigla í rólegheitunum í ágæts veðri og var að drekka bjórin sinn sem var ekki bannað á skipum á þeim tíma. Þennan dag voru tveir menn uppi á mastri skipsins og voru að kanna eftir landi því þeir voru pínu villtir vegna þess að skipstjórinn (landkönnuðurinn) var búinn að vera blautur (fullur) mest alla ferðina.    Þarna voru mennirnir tveir uppi á mastri skipsins og komu allt í einu auga á þetta land og kölluðu þá “land fyrir stafni” (á grísku sko). Þá fóru allir skipsverjar, litu út frá borði og virtu landið fyrir sér. Síðan spurði einn skipsverjana landkönnuðin, “Hvaða land er þetta?”. Þá var landkönnuðurinn vel í því náttúrulega og að sötra dropana úr síðasta bjórnum og öskraði þá til baka “Ultima Thule!” Þá öskruðu skipsverjarnir aftur til hinna “þetta er Ultima Thule” og upp frá því var þetta land lengst úti á enda alheimsins kallað þetta.   Þarna hafiði það. Núna klóra kanski margir sagnfræðingar sér í hausnum og segja með sjálfum sér “afhverju í andskotanum vissi enginn þetta áður”. En allavegana þá verði ykkur að góðu með þessa fræðslu. Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Reykjavík, Iceland

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 15:03:59 / stebbigu

Vér erum vaskir fiskimenn!!

   Það má segja að ég hafi bara verið að festa landfestar núna eða þannig lagað. Við komum í land klukkan 8 í morgun og þá með 92,7 millur í lestinni ef ég man rétt sem að var allt í lagi en hafði mátt vera meira en við þurftum að fara í land vegna þess að jólið á blökkini brotnaði og þá þurfti að hætta veiðum.

   En alla vegana þá hef ég sögu að segja og það hefur að gera með sögu Íslands að gera.

(kemur bráðum. Hef ekki tíma núna.)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 14:25:45 / stebbigu

Af Sjónum

   Þannig er það að ég var bara að koama af sjónum í gær eftir stuttan 25 daga túr sem er nú ekki mikið en hann endaði nú allavegana vel því við komumst upp í 103 milljónir sem er ekki al slæmt. En allavegana þá er mar svona að vonast til þess að komast aftur þótt að það verði líklega ekki í næsta túr en mar veit alldrey. Svo þannig er það að núna er mar bara dunda sér í að gera ekki neitt því mar er ekki að vinna og ekki í skóla þannig að ég veit ekkert hvað ég á að gerae. Mar er bara eins og einhver ráfandi hálviti í þessari aðstöðu. En mar verður að gera eitthvað að viti þannig að ég er að spá í að skella mér suður bara á næstunni ef að ég kemst ekkert aftur út á sjó. Ekki mikið meira um það í bili.

Þetta er Stebbi Gunn sem talar frá Ólafsfirði


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 11:40:41 / stebbigu

Ekkert gáfulegt

  Ég var hérna á google.com áðan að leika mér og drepa tíman en ákvað að skrifa gáfulegt en það eina sem kom upp í myndum var eitthvað fólk sem að virtist ekkert vera neitt gáfulegt.

En allavegana þá er ég bara hérna fyrir sunnan fyrir þá sem að ekki vita og er búinn að vera hérna síðan á fimmtudaginn í síðustu viku og ég er bara hérna að chilla. Svo er mar náttúrulega að fara aftur norður í dag því að ég er víst að fara á sjó á fimmtudaginn á Mánanum ef að allt gengur eftir óskum sem að ég held að hafi bara nú þegar gerst.

Annars þá er mar að spá í að fara að skrifa hingað inn oftar en lítið en það er varla að maður geti það þar sem að það er ekkert voða auðvelt þarna sem ég er að fara.

Já... Þetta er komið gott baraþ

Þetta er Stebbi Gunn sem að talar frá Reykjavík, Íslandi


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 23:53:32 / stebbigu

Ekkert að viti til að segja

  Mig langar til þess að setja eitthvað fyndið, skemmtileget, hugvitsamlegt eða gáfulegt hérna inn en ég bara finn ekkert þessháttar (er þess-háttar eitt orð?) til þess að skrifa þannig að það bara verður bara að hafa það.

Annars þá er komin skoðanakönnun. Mar bara duglegur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4